Starfssvið
ADVEL hefur um árabil sérhæft sig í lögfræðiráðgjöf við fyrirtæki og stofnanir. Viðfangsefni og áskoranir viðskiptavina eru af margvíslegum toga en eiga það þó sammerkt að bæði er þörf á breiðri þekkingu og sérhæfingu innan ákveðinna sviða. Við leggjum áherslu á að starfa sem teymi til að tryggja að viðskiptavinir hafi ávallt aðgang að besta sérfræðingi á hverju sviði.