ADVEL veitir fyrirtækjum alhliða ráðgjöf á sviði samkeppnismála og á öllum sviðum EES og Evrópulöggjafar. Jafnframt veitir ADVEL fyrirtækjum og opinberum aðilum ráðgjöf á sviði opinberra innkaupa. Tekur þjónustan m.a. til eftirfarandi sviða/verkefna:
- Efnisreglur samkeppnislaga (markaðsyfirráð og röskun á samkeppni)
- Samrunareglur
- Samkeppnisréttaráætlanir
- Samkeppnisréttarstefnur
- Samkeppnisréttarleg úttekt
- Námskeið og fræðsla
- Ríkisaðstoð
- Samskipti við Eftirlitsstofnun EFTA og Framkvæmdastjórn ESB
- Ráðgjöf til kaupenda og bjóðenda
- Útboðsreglur
- Val á innkaupaaðferð
- Rýni útboðsgagna
- Undirbúningur tilboða
- Rekstur ágreiningsmála fyrir dómstólum og á stjórnsýslustigi

