Vátryggingaréttur
ADVEL hefur um áratuga skeið veitt víðtæka ráðgjöf á sviði vátryggingaréttar, einkum fyrir frum- og endurtryggjendur, enda hefur starfsfólk stofunnar umfangsmikla reynslu af störfum fyrir vátryggjendum. Tekur þjónustan m.a. til eftirfarandi sviða/verkefna:
- Greiningar á umfangi vátryggingarverndar og réttarstöðu aðila
- Ráðgjafar vegna tilkynninga og krafna í vátryggingar
- Ráðgjafar um túlkun og efni skilmála
- Samskipta við eftirlitsaðila
- Úrlausn ágreiningsmála fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum